Fjórtán gráðuð í kickboxi
21. september 2016
Gráðuní kickboxi fór fram í Mjölni sl. sunnudag en þetta er í annað skiptið sem kickboxgráðanir eru gerðar hjá félaginu. Fimm gráður eru í kickboxi, hvít, blá, rauð, silfur og gull en á sunnudaginn fór fram gráðun í blátt og rautt. Þess má geta að lágmarkskrafa fyrir þátttöku í inntökupróf æfingahóps keppnisliðs Mjölnis er blá gráða (eða sambærilegt) bæði í Kickboxi og BJJ.
Alls náðu 14 manns gráðun á sunnudaginn, 8 í blátt og 6 í rautt. Þau Árni Árnason, Bjarki Pétursson, Freyr Danielsson, Ísak Jökulsson, Ívar Orri Ómarsson, Kristín Þorsteinsdóttir, Ronnrick Patambag Cruz og Þórarinn Friðriksson voruð gráðuð í blátt en þau Arnþór Karl Barðdal, Diego Björn Valencia, Elmar Gauti Halldórsson, Harpa Söring, Jón Örn Sigurðsson og Sigrún Eva Magnúsdóttir hlutu rautt. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










