Bólusetning í boði mjölnis - aprílgabbið 2021
1. apríl 2021
Mjölnir hefur komist að samkomulagi við Landspítalann um að fá um 400 skammta af bóluefninu AstraZeneca. Bólusetningum með AstraZeneca var frestað tímabundið en notkun þess munhefjast á ný. Vegna þessara tafa eru samt um 400 skammtar að renna út og hefur Mjölnir fengið þá til afhendingar en hjúkrunarfræðingar sem eru meðlimir í Mjölni munu annast bólusetninguna í dag og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram á netinu í bólusetninguna og er það gert með því að smella á tengilinn hér að neðan og gefa samþykki sitt. Þetta er eingöngu fyrir virka meðlimi í Mjölni og munum við eftir páska getað opnað æfingar fyrir þá iðkendur sem hafa fengið þessa bólusetningu.SKRÁ SIG Í BÓLUSETNINGU MJÖLNIS