
Um námskeið
🔴 UPPSELT – Dóttir námskeiðið sem hefst 2. nóvember er uppselt. Skráðu þig á biðlistann og við látum þig vita um leið og næsta námskeið opnar.
Dóttir – 4 vikur 🔥
Dóttir eru glute-, core- og brennslutímar eingöngu fyrir konur. Unnið er með stangir, lóð, teygjur og boxpúða – fjölbreyttar æfingar sem styrkja, móta og taka vel á.
Í 4 vikur mætir þú 3 sinnum í viku í Dóttir tíma með hópi kvenna. Imma þjálfari tekur á móti þér frá fyrsta degi, aðlagar æfingarnar að þér og fylgir þér eftir allan tímann. Engin fyrri reynsla nauðsynleg.
Innifalið:
12 tímar – mánudaga og miðvikudaga + laugardaga (vika 1–2) / föstudaga (vika 3–4)
Móttaka og leiðsögn frá Immu frá fyrsta tíma
Skilaboð og stuðningur frá þjálfara allt tímabilið
Aðgangur að sauna og pottum eftir æfingar
Hvenær: 2.–27. nóvember
Tímar: mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30 · laugardaga kl. 11:00 (vika 1–2) · föstudaga kl. 17:05 (vika 3–4)
Verð: 19.900 kr – takmarkaður fjöldi
Búnaður: íþróttaföt.
Dagskrá
Mánudagur
17:30
Týssalur
Miðvikudagur
17:30
Týssalur
Föstudagur
17:05
Týssalur
Þjálfarar
Imma Helga Arnþórsdóttir






















