
Um námskeið
Í BOX unglinga er farið yfir öll helstu grunnatriði í hnefaleikum: Vörn, fótaburð og hvernig á að kýla rétt. Mikið er lagt upp úr öryggi iðkenda í kennslu hnefaleika.
Á unglinganámskeiðum er sérstaklega kennt út frá hinu svokallaða Diploma kerfi en þar er einungis dæmt út frá tæknilegri kunnáttu og bannað að kýla fast til að tryggja öryggi ungra iðkenda.
Tímarnir fara fram á Mánudögum og Miðvikudögum kl. 16:00. Námskeiðið er fyrir 12 til 17 ára unglinga.
Dagskrá
Mánudögum
16:00 - 17:00
Þórssalur
Miðvikudögum
16:00 - 17:00
Þórssalur
Þjálfarar
Vilhjálmur Hernandez





















