Vel heppnað bolamót - sighvatur sigraði tom breese

18. febrúar 2018

Uppselt var á Bolamótið sem fór fram í Mjölni í gærkvöldi. Níu frábærar glímur voru á mótinu. Sighvatur Magnús Helgason úr Mjölni sigraði UFC bardagamanninn Tom Breese í aðalglímu kvöldsins.

Uppselt var á Bolamótið sem fór fram í Mjölni í gærkvöldi. Níu frábærar glímur voru á mótinu. Sighvatur Magnús Helgason úr Mjölni sigraði UFC bardagamanninn Tom Breese í aðalglímu kvöldsins.

Svo kallaðar EBI reglur voru í gildi en þar eru engin stig og einungis hægt að sigra á uppgjafartaki. Þetta er í fyrsta sinn sem mót með slíkum reglum hefur verið haldið hér á landi.

Í aðalglímu kvöldsins mættust eins og áður segir þeir Sighvatur Magnús Helgason (Mjölnir) og UFC-bardagamaðurinn Tom Breese (Renegade MMA). Sá breski byrjaði á að ná fellu snemma í glímunni. Er Sighvatur var undir náði hann með ótrúlegum hætti að ná bakinu á Breese. Sighvatur reyndi að ná hengingunni en Breese varðist vel. Eftir smá baráttu náði Sighvatur að einangra aðra höndina og læsti „rear naked choke“ hengingunni. Frábærlega vel gert hjá Sighvati!

Í næstsíðustu glímu kvöldins mættust þeir Halldór Logi Valsson (Mjölnir) og Bjarni Kristjánsson (Mjölnir). Glíman var einstaklega skemmtileg og hröð. Að lokum náði Halldór Logi „guillotine“ hengingu og kláraði glímuna þegar skammt var eftir af tímanum. Frábær glíma sem var á endanum valin glíma kvöldsins og fengu þeir að launum 20.000 kr. hvor frá Sportvörum.

Karlotta Brynja Baldvinsdóttir (VBC) mætti Alex Coleman (Standard BJJ og Globetrotters) frá Bandaríkjunum. Glíman var hnífjöfn og spennandi og þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit. Eftir þrjár lotur í bráðabana tókst Karlottu að ná armlás í þriðju og síðustu lotunni. Alex þurfti því að ná uppgjafartakinu á 24 sekúndum en það tókst henni ekki og stóð Karlotta uppi sem sigurvegari í frábærri glímu.

Uppgjafartak kvöldsins lét sjá sig í þriðju glímu kvöldsins þegar þeir Kristján Helgi Hafliðason (Mjölnir) og Sigurpáll Albertsson (VBC) mættust. Glíman var æsispennandi en Sigurpáll náði glæsilegum fótalás og neyddist Kristján Helgi til að tappa út. Virkilega vel gert hjá Sigurpáli og fékk hann að launum 30.000 kr. frá Drunk Rabbit fyrir besta uppgjafartak mótsins.

Glímur kvöldsins voru æsispennandi en hér má sjá öll úrslit kvöldsins:

Sighvatur Magnús Helgason sigraði Tom Breese með „rear naked choke“Halldór Logi Valsson sigraði Bjarna Kristjánsson með „guillotine“ henginguBjarki Þór Pálsson sigraði Davíð Frey Guðjónsson með „guillotine“ henginguÓmar Yamak sigraði Magnús ‘Loka’ Ingvarsson með „heel hook“Karlotta Brynja Baldvinsdóttir sigraði Alex Colemen eftir bráðabanaInga Birna Ársælsdóttir sigraði Dóru Haraldsdóttur með „heel hook“Sigurpáll Albertsson sigraði Kristján Helga Hafliðason með „kneebar“Margrét Ýr Sigurjónsdóttir sigraði Lilju Rós Guðjónsdóttur með „rear naked choke“ í framlenginguJósep Valur Guðlaugsson sigraði Helga Rafn Guðmundsson með „arm-triangle“

Áhuginn á mótinu var mikill og er ljóst að þetta mót og fleiri slíkir viðburðir eru komnir til að vera.

Nýjustu fréttir

Kaupa kort

Komdu Í áskrift og fáðu eitt grunnnámskeið að eigin vali FRÍTT. Eftir það fá meðlimir 50% afslátt af grunnnámskeiðum.

Opnunartímar

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

© 2024 — Copyright

© 2024 — Allur réttur áskilinn

Facebook

Instagram

mjolnir@mjolnir.is

Opnunartímar

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 -22:00