Unbroken deildin hefst á laugardaginn
26. janúar 2023
Þetta er í fyrsta sinn sem sérstök glímudeild er haldin hér á landi. Keppt er í nogi (án galla) uppgjafarglímu og er einungis hægt að sigra með uppgjafartaki. Takist hvorugum að ná uppgjafartakinu endar glíman í jafntefli.
Allir keppa við alla í sínum þyngdarflokki og er glímunum dreift yfir þrjá keppnisdaga; 28. janúar, 18. febrúar og 11. mars.
Fyrsti keppnisdagur er því núna á laugardaginn í Mjölni en tveir efstu í hverjum flokki mætast svo í hreinni úrslitaglímu laugardaginn 3. júní í Tjarnarbíó.
Þyngdarflokkum er skipt í byrjendadeild (0-2 ára reynsla) og úrvalsdeild. Keppendurnir 98 koma frá níu félögum og verða þyngdarflokkarnir eins og hér segir:
Karlar:+99 kg karla-99 kg karla-88 kg karla-77 kg karla-66 kg karla
Kvenna:+70 kg kvenna- 70 kg kvenna- 60 kg kvenna
Keppnisreglur má finna héren mótið hefst kl. 11 á laugardaginn þar sem 162 glímur verða á dagskrá á fjórum völlum. K