Opnunarhátíð mjölnishallarinnar í öskjuhlíð
11. febrúar 2017
Mjölnir heldur uppá hallarbyltingu sína í Öskjuhlíðinni með veglegri opnunarhátíð Mjölnishallarinnar milli kl. 14-16 laugardaginn 18. febrúar. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér nýju Mjölnishöllina, húsakynnin og það sem í boði verður. Upphífingakeppnin byrjar kl 15:00 í Hel, verðlaunin fyrir flestu upphífingarnar er 6 mánuðir í Mjölni. Nánari upplýsingar og dagskrá má finna íatburðinum á Facebook.
Um kvöldið verður síðan Ginnungur, opnunarpartý Mjölnishallarinnar. Það hefst kl. 21:30 og aldurstakmark er 20 ár. Nánariupplýsingar á Facebook.
Við minnum á aðsíðasta æfingin á Seljaveginumverður miðvikudaginn 15. febrúar.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










