Logi og Steinar Norðurlandameistarar í MMA - Allir íslensku keppendurnir á verðlaunapall

19. janúar 2026

Okkar menn gerður heldur betur góða ferð á Norðurlandameistaramótið í MMA (blönduðum bardagaíþróttum) áhugamanna sem fór fram í Svíþjóð sl. föstudag og laugardag, 16.-17. janúar. Við Íslendingar áttum 6 keppendur á mótinu, alla úr Mjölni, og er skemmst frá því að segja að þeir unnu allir til verðlauna í sínum flokki en alls komu Íslendingarnir heim með þrenn gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Logi Geirsson og Steinar Bergsson urður báðir Norðurlandameistarar, Logi í tveimur flokkum!

Eins fram kom voru íslensku keppendurnir allir úr Mjölni, þeir Þorleifur Feykir Veigarsson (U23 ofurveltivigt), Steinar Bergsson (U23 millivigt), Viktor Gunnarsson (fjaðurvigt), Anton Hrafnhildarson (ofurveltivigt), Júlíus Bernsdorf (þungavigt) og síðast en ekki síst Logi Geirsson sem keppti í U23 ofurmillivigt og fékk jafnframt undanþágu til að keppa í léttþungavigt fullorðinna, þar sem hann keppti bæði upp fyrir sig í aldri og þyngd en Logi varð 21 árs núna í janúar. Gunnar Nelson, yfirþjálfari Mjölnis, fylgdi þeim út ásamt Jóni Viðari Arnþórssyni sem einnig var í horninu þeirra.

Logi Geirsson, Norðurlandameistari frá í fyrra, varði titilinn sinn í ár og gerði gott betur þegar hann þaggaði niður í höllinni með glæsilegum sigri á heimamanninum Gustaf Sandelin í léttþungavigt fullorðinna. Íslendingurinn ungi vann báða úrslita bardagana í fyrstu lotu, þann fyrri (U23) gegn Norðmanninum Tsvetomir Stoyanov með tæknilegu rothöggi og hinn seinni með uppgjafar hengingartaki gegn heimamanninum Gustaf Sandelin eins og áður sagði. Logi er því tvöfaldur Norðurlandameistari, bæði í U23 ofurmillivigt og í léttþungavigt fullorðinna. Glæsilegt afrek hjá Loga að taka gull í tveimur flokkum með þessum hætti.
Umfjöllun MMAFrétta um fyrri bardaga Loga.
Umfjöllun MMAFrétta um seinni bardaga Loga.

Logi fagnar sigri gegn Gustaf Sandelin og tvöföldum Norðurlandameistaratitli.

Steinar Bergsson fór beint í úrslit í U23 millivigtinni þar sem hann tryggði sér Norðurlandameistaratitlinn í flokknum með sigri á heimamanninum Viggo Axelsson í fyrstu lotu með tæknilegu rothöggi! Frábær frammistaða og þriðja gullið til Íslendinga á þessu móti.
Umfjöllun MMAFrétta um bardaga Steinars.

Steinar klárar Viggo Axelsson . Ljósm.: Johan Rosén Photo

Steinar fagnar gullinu. Ljósm.: Johan Rosén Photo
Steinar fagnar Norðurlandameistaratitlinum. Ljósm.: Johan Rosén Photo

Júlíus Bernsdorf sigraði heimamanninn Mark Kurji á klofnum dómaraúrskurði í undanúrslitum þungavigtarinnar og mætti síðan öðrum Svía, Jiffa Kundo, í úrslitunum. Þar var Júlíus með nokkra yfirburði í fyrstu lotunni en lenti í hengingartaki í lok hennar eftir misheppnaða fellu og varð að játa sig sigraðan og gera sér silfurverðlaunin að góðu.
Umfjöllun MMAFrétta um fyrri bardaga Júlíusar.
Umfjöllun MMAFrétta um seinni bardaga Júlíusar.

Julius Berndorf fagnar sigri
Julius Berndorf fagnar sigri

Viktor Gunnarsson mætti Norðmanninum Eric Nordin í undanúrslitum fjaðurvigtarinnar og sigraði með uppgjafar hengingartaki í þriðju lotu. Hann mætti svo Finnanum Walter Björkroth í úrslitunum. Bardaginn var gríðarlega jafn og endaði í klofnum dómaraúrskurði þar sem einn dómari taldi Viktor hafa unnið en tveir gáfu Finnanum sigur. Viktor fékk því silfrið en tæpara hefði það ekki geta verið og Íslendingurinn óheppinn að ná ekki í gullið þarna.
Umfjöllun MMAFrétta um fyrri bardaga Viktors.
Umfjöllun MMAFrétta um seinni bardaga Viktors.

Viktor í bardaganum við Walter Björkroth. Ljósm.: Johan Rosén Photo

Þorleifur Feykir Veigarsson sigraði heimamanninn Markus Uysal sannfærandi í undanúrslitum U23 ofurveltivigtarinnar á samróma dómaraúrskurði, en þess má geta að þetta var frumraun Þorleifs Feykis í MMA. Hann mætti síðan hinum finnska Arlex Blomqvist en þar varð Íslendingurinn að játa sig sigraðan á dómaraúrskurði sem var, líkt og í fyrri bardaganum, réttmætur dómur. Þriðja silfur Íslands í höfn.
Umfjöllun MMAFrétta um fyrri bardaga Feykis.
Umfjöllun MMAFrétta um seinni bardaga Feykis.

Þorleifur Feykir í bardaganum við Arlex Blomqvist. Ljósm.: Johan Rosén Photo

Anton Hrafnhildarson mætti Svíanum Simon Junkergård í undanúrslitum ofurveltivigtarinnar. Anton sigraði sennilega fyrstu lotuna en lenti í hengingartaki þegar hann reyndi fellu í annarri lotu og varð að játa sig sigraðan. Hann mætti síðan Norðmanninum Robin Kristiansen í baráttunni um þriðja sætið. Sá bardagi stóð allar þrjár loturnar og endaði í klofnum dómaraúrskurði sem nú féll okkar megin. Bronsverðlaun til Antons og þar með komust allir Íslendingarnir á verðlaunapall.
Umfjöllun MMAFrétta um fyrri bardaga Antons.
Umfjöllun MMAFrétta um seinni bardaga Antons.

Anton í bardaganum við Robin Kristiansen. Ljósm.: Johan Rosén Photo

Það er sannarlega frábær frammistaða að 6 keppendur komi heim með 7 verðlaun af Norðurlandameistaramótinu, þrenn gull, þrenn silfur og eitt brons. Tveir Norðurlandameistarar og annar tvöfaldur! Við erum óendanlega stolt af okkar mönnum.

Logi Geirsson er tvöfaldur Norðurlandameistari

Nýjustu fréttir

Sjá meira ->

Sjá meira ->

Sjá meira ->

Sjá meira ->

Kaupa kort

Komdu Í áskrift og fáðu eitt grunnnámskeið að eigin vali FRÍTT. Eftir það fá meðlimir 50% afslátt af grunnnámskeiðum.

Opnunartímar

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

© 2024 — Copyright

© 2024 — Allur réttur áskilinn

Facebook

Instagram

mjolnir@mjolnir.is

Opnunartímar

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 -22:00