Mjölnir vann 37 af 58 flokkum á íslandsmeistaramótinu í bjj
24. október 2019
Íslandsmeistaramótið í brasilísku jiu-jitsu fór fram á laugardaginn í Laugardalshöll. Mjölnir var með stóran fjölda keppenda en yfir 200 keppendur voru skráðir á mótið frá sex félögum.
Keppendur Mjölnis náðu frábærum árangri á mótinu en Mjölnir vann 37 af 58 flokkum mótsins. Halldór Logi Valsson vann opinn flokk karla og Margrét Ýr Sigurjónsdóttir vann opinn flokk kvenna. Þau tóku einnig sína flokka, unnu allar glímurnar sína og það án þess að fá eitt stig skorað á sig. Anna Rakel Arnardóttir tók síðan opinn flokk stúlkna.
Frábær árangur á mótinu en öll úrslit mótsins má sjá áSmoothcomp hér.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










