Mjölnir open unglinga 2015 verður 6. september
29. ágúst 2015
Mjölnir Open unglinga 2015 fer fram sunnudaginn 6. september næstkomandi í Mjölniskastalanum að Seljavegi 2 í Reykjavík. Keppt er í uppgjafarglímu (nogi) í aldursflokkum unglinga fæddra: 1998-1999, 2000-2001 og 2002-2003, sjá nánar hér að neðan. Mótið hefst stundvíslega kl. 11:00 en mæting fyrir keppendur er kl. 10:30. Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir@mjolnir.is og lýkur skráningu kl. 18 föstudaginn 4. september. Skráningargjald er kr. 1.500.Vigtun er möguleg í afgreiðslu Mjölnis á föstudaginn 4. sept. frá kl. 12-18 og á opnunartíma á laugardaginn. Þjálfarar félaga geta sent inn vigtun keppenda sinna sem verður þá staðfest á keppnisdegi. Standist keppandi ekki innsenda vigtun er viðkomandi dæmdur úr leik. Tekið skal fram að ekki er gert ráð fyrir að unglingar séu að létta sig fyrir keppni enda fara þyngdaflokkar eftir skráningu á mótið.2000-2001 og 2002-2003 (glímulengd 4 mínútur)
Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.
Leyfileg brögð:
Óleyfileg brögð:
1998-1999 (glímulengd 5 mínútur)
Leyfileg brögð:
Óleyfileg brögð:
Það má vera að ofangreindur listi sé ekki tæmandi og því skal spyrja út í vafamál með hvort eitthvað megi eður ei þegar farið verður yfir reglur á mótsdegi. Dómarar áskilja sér rétt til að banna ákveðin brögð þó þau hafi ekki verið tilgreind á ofangreindum lista. Það er ítrekað við keppendur að sýna ávallt íþróttamannslega hegðun og er reiknað með því að keppendur hafi vit og þekkingu til að framkvæma ekki aðgerðir sem líklegt er að valdi líkamlegum skaða. Ef að dómari telur að keppandi hafi brotið af sér með því að stofna vísvitandi til líkamsskaða á öðrum keppanda þá skal þeim keppanda umsvifalaust vísað úr keppni.Stigagjöf er hefðbundin samkvæmtreglum IBJJF.
Mótsstjóri verður Sigrún Helga Lund formaður BJJ Sambands Íslands.
Iðkendur athugið að allir tímar falla niður í Mjölni þennan sunnudag vegna mótsins. Mætum og styðjum okkar fólk og sjáum efnilegasta glímufólk landsins takast á.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










