MJÖLNIR OPEN 20 ÚRSLIT
29. apríl 2026
Mjölnir Open, stærsta glímumót á Íslandi, var haldið um helgina en alls voru 143 keppendur á mótinu frá 8 félögum en keppt var í 32 flokkum. Þetta er í tuttugasta skiptið sem mótið er haldið. Keppt er í svokallaðri uppgjafarglímu (BJJ Nogi) og sást vel á glímunum hversu öflug íþróttin er orðin á Íslandi.
Mótið tókst afar vel og mikil stemning var í húsinu. Svo fór að lokum að keppendur úr Mjölni unnu til 20 gullverðlauna, sem átti vel við á 20 ára afmæli mótsins, VBC vann 11 gull, RVK MMA 6 gull og Berserkir BJJ 1 gull.
Þau Stefán Fannar Hallgrímsson og Imma Helga Arnþórsdóttir voru svo sannarlega sigurvegarar mótsins en þau unnu bæði sína þyngdarflokka sem og opinn flokk karla og kvenna. Þau koma bæði úr Mjölni. Þess má geta að Imma keppti í léttasta þyngdarflokki kvenna á mótinu, þ.e. -60kg, og Stefán Fannar í næst léttasta þyngdarflokki karla, þ.e. -77kg.
Þá siguðu þau Roman Korshak (Rvk MMA) og Natalía Matthíasdóttir (Mjölni) opin flokk ungmenna drengja og stúlkna.
Myndbönd frá mótinu munu birtast fljótlega.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->









