Áhugaverðustu glímurnar fyrir 3. dag unbroken deildarinnar

6. mars 2023

Það ræðst nú á laugardaginn hverjir mætast í úrslitum Unbroken deildarinnar. Síðasti dagur deildarkeppninnar er nú á laugardaginn og þá kemur í ljós hverjir mætast í Tjarnarnbíói þann 3. júní.

Það ræðst nú á laugardaginn hverjir mætast í úrslitum Unbroken deildarinnar. Síðasti dagur deildarkeppninnar er nú á laugardaginn og þá kemur í ljós hverjir mætast í Tjarnarnbíói þann 3. júní.

Mikil spenna er í nánst öllum flokkum en þó eru úrslitin ráðin í nokkrum flokkum. Mesta spennan er í fjölmennustu flokkunum þar sem enn eru margir keppendur sem eiga séns á sæti í úrslitum.

Áhugaverðustu glímurnar:

Brynjólfur Ingvarsson vs. Breki HarðarsonÞorsteinn Snær vs. Hrafn ÞráinssonBrynjólfur Ingvarsson vs. Þorsteinn SnærÞorsteinn Snær vs. Breki Harðarson

Þorsteinn Snær er á toppnum og fylgja Vilhjálmur Arnarsson, Breki Harðarson og Brynjólfur Ingvarsson fast á hæla hans. Þorsteinn Snær mætir keppendum í 3., 4. og 5. sæti á laugardaginn og geta þeir allir tekið stig af hvor öðrum á laugardaginn. Það verða því margar gríðarlega spennandi glímur á laugardaginn og mikið undir í þessum sterka flokki.

Áhugaverðustu glímurnar:

Helgi Ólafsson vs. Stefán Fannar

Helgi og Stefán Fannar eru jafnir með fullt hús stiga og eru nánast komnir í úrslit. Þeir mætast núna á laugardaginn og verður virkilega gaman að sjá hvernig glíma þeirra mun fara.

Áhugaverðustu glímurnar:

Bjarki Eyþórsson vs. Bjarni Ká

Halldór Logi Valsson er á toppnum með 18 stig og Eiður Sigurðsson er í 2. sæti með 15 stig. Eiður meiddist hins vegar á keppnisdegi 2 og mun ekki geta keppt á laugardaginn. Bjarki Eyþórsson og Bjarni Ká mætast og mun sú glíma sennilega skera úr um hvor nái 2. sætinu. Þetta verður æsispennandi glíma.

Áhugaverðustu glímurnar:

Eggert Djaffer vs. Diego Björn Valencia

Daði Steinn flaug inn í úrslit og hefur unnið allar glímurnar sínar. Aðal spennan er um 2. sætið og þar eru þeir Diego Valencia (Mjölnir) og Eggert Djaffer (Mjölnir) jafnir með 14 stig. Þeir hafa tvisvar mæst hingað til og báðar glímurnar endað með jafntefli. Þeir mætast í þriðja sinn um helgina og verður mjög spennandi að sjá hvort við fáum uppgjafartak eða þriðja jafnteflið. Ef þriðja glíman endar einnig í jafntefli og þeir enda með jafnmörg stig verður það samanlagður tími í sigrum sem mun ráða úrslitum. Þ.e., sá keppandi sem var fljótari að vinna sínar glímur endar í 2. sæti.

Inga Birna er langefst hér og Auður Olga í 2. sæti. Kolka Hjaltadóttir er í 3. sæti en hún er meidd og verður ekki með á þriðja og síðasta keppnisdegi. Það verða því Auður Olga og Inga Birna sem mætast hér í úrslitum.

Áhugaverðustu glímurnar:

Ólöf Embla vs. Lilja GuðjónsdóttirSara Dís vs. Ólöf EmblaSara Dís vs. Lilja Guðjónsdóttir

Ólöf Embla (18 stig), Lilja (17 stig) og Sara Dís (13 stig) eru í efstu þremur sætunum. Þær mætast allar innbyrðis á laugardaginn og verður mikið undir í þessum glímum. Hvaða tvær glímukonur ná úrslitasætunum tveimur?

Áhugaverðustu glímurnar:

Björn Hilmarsson vs. Haukur Birgir JónssonHaukur Birgir vs. Sigurður EggertssonSigurður Eggertsson vs. Björn Hilmarsson

Haukur Birgir er efstur í -66 kg flokki og eru Björn Hilmarsson og Sigurður Eggertsson ekki langt undan. Þeir mætast allir þrír innbyrðis á laugardaginn og verða viðureignir þeirra spennandi.

Áhugaverðustu glímurnar:

Aron Óli vs. Sindri DagurAron Óli vs. Hlynur Smári

Hér er mikið undir fyrir síðustu þrjár umferðirnar. Sindri Dagur og Aron Óli eru í efstu tveimur sætunum en Hlynur Smári er skammt undan. Aron Óli keppir við þá báða á laugardaginn og verða það afar mikilvægar glímur í þessum spennandi flokki.

Áhugaverðustu glímurnar:

Stefán Atli vs. Arnar DanHilmir Dan vs. Elvar LeonardssonArnar Dan vs. Arnar Th SkúlasonHilmar Leonardsson vs. Hilmir DanElvar Leonardsson vs. Arnar DanArnar Th vs. Stefán Atli

Hér geta efstu 6 keppendurnir í þessum 11 manna flokki komist í úrslit. Þrjár umferðir eru eftir og er allt galopið. Staðan gæti verið gjörólík eftir helgina enda margar innbyrðis viðureignir eftir milli efstu keppenda.

Hér er líka allt galopið og geta allir 6 keppendurnir komist í úrslit ennþá þó Bragi Þór sé nánast öruggur með úrslitasæti. Það má því segja að allar glímurnar hér séu mikilvægar fyrir baráttuna um 2. sætið.

Áhugaverðustu glímurnar:

Eiríkur Guðni vs. Mímir

Birgir Steinn er nokkuð öruggur með úrslitasæti en Mímir og Eiríkur Guðni eru jafnir í 2. sæti með 8 stig. Þeirra glíma mun því líklegast skera úr um hvor nær hinu úrslitasætinu.

Áhugaverðustu glímurnar:

Harpa Hauksdóttir vs. Þórhanna Inga

Þær Harpa og Þórhanna eru báðar nánast öruggar með sæti í úrslitum. Viðureignir þeirra hafa verið mjög spennandi í deildinni og hafa báðar glímurnar endað með jafntefli. Það verður spennandi að sjá hvort þriðja viðureignin þeirra muni einnig enda í jafntefli en sigur gæti tryggt toppsætið og montréttinn fyrir úrslitakvöldið.

Áhugaverðustu glímurnar:

Vera Óðinsdóttir vs. Kolfinna Þöll

Þær Vera og Kolfinna eru nánast búnar að tryggja sig í úrslit. Þær hafa, líkt og í -60 kg flokki kvenna, mæst tvisvar og báðar glímurnar endað með jafntefli. Efsta sætið er því undir í viðureign þeirra núna um helgina.

Nýjustu fréttir

Kaupa kort

Komdu Í áskrift og fáðu eitt grunnnámskeið að eigin vali FRÍTT. Eftir það fá meðlimir 50% afslátt af grunnnámskeiðum.

Opnunartímar

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

© 2024 — Copyright

© 2024 — Allur réttur áskilinn

Facebook

Instagram

mjolnir@mjolnir.is

Opnunartímar

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 -22:00