LOGI GEIRSSON ÁFRAM Á SIGURBRAUT
12. desember 2024
Grettismótið 2024 fór fram laugardaginn 7. desember síðastliðinn en þar er keppt í brasilísku jiu-jitsu (BJJ) og í galla (Gi). Keppendur voru 125 frá fjórum félögum. Hjá börnum og ungmennum er keppt bæði í aldurs- og þyngdarflokkum en í hjá fullorðnum í þyngdarflokkum.
Þetta var síðasta mótið á árinu og Logi Geirsson úr Mjölni hélt áfram sigurgöngu sinni þetta árið með því að vinna gull bæði í sínum þyngdarflokki (-90kg) og í opnum flokki. Logi er þar með búinn að vinna gull á öllum stærstu mótunum á árinu.
Þá unnu þau Emil Juan Valencia og Jóhanna Hilda Sigurjónsdóttir, bæði úr Mjölni, opinn flokk ungmenna í drengja og stúlkna flokki, sem og sína þyngdarflokka.
Reyndar unnu keppendur úr Mjölni alls 18 gull, 18 silfur og 16 bronsverðlaun á mótinu.
Öll úrslit má finna hér:
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










