Kristín sif með silfur á norðurlandamótinu
3. júní 2018
Okkar kona, Kristín Sif Björgvinsdóttir, nældi sér í silfur í gær á Norðurlandamótinu í boxi sem fram fór um helgina. Þetta er í þriðja sinn sem Íslendingur hlýtur verðlaun á Norðurlandamótinu.Fjórir Íslendingar kepptu á Norðurlandamótinu sem fram fór í Noregi um helgina. Ásgrímur Gunnar Egilsson keppti í -69 kg flokki karla en hann tapaði fyrir Svíanum Adolphe Sylvia eftir einróma dómaraákvörðun. Jafet Örn Þorsteinsson keppti í -81 kg flokki karla en hann tapaði fyrir Norðmanni eftir klofna dómaraákvörðun. Kristján Ingi Kristjánsson keppti í -91 kg flokki karla en hann tapaði einnig fyrir Norðmanni og var bardaginn stöðvaður í 1. lotu.Kristín Sif Björgvinsdóttir keppti í -75 kg flokki kvenna. Í gær mætti hún Julie Holte frá Noregi og sigraði eftir einróma dómaraákvörðun. Í dag, sunnudag, mætti hún svo Love Holgersson frá Danmörku en þurfti að lúta í lægra haldi eftir einróma dómaraákvörðun. Silfur því niðurstaðan hjá Kristínu en Kristín var búin með tvo boxbardaga áður en hún fór á mótið.Eins og áður segir er þetta í þriðja sinn sem Íslendingur hlýtur verðlaun á Norðurlandamótinu í boxi. Kolbeinn Kristinsson hlaut silfur á Norðurlandamótinu 2013 og Valgerður Guðsteinsdóttir náði bronsi árið 2016. Þess má geta að ekki er nema rúmt ár síðan Kristín hóf að boxa eftir að hafa byrjað í víkingaþreki í Mjölni.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










