Hátt í 30 erlendir bardagakappar í mjölni
11. febrúar 2019
John Kavanagh hefur yfirumsjón með æfingabúðunum en æfingabúðirnar standa yfir í tvær vikur hér í Mjölni. Meðal þeirra sem hafa verið í æfingabúðunum eru UFC bardagamennirnir Brad Katona og John Phillips en sá síðarnefndi er með bardaga á UFC bardagakvöldinu í London í mars. Þá er fyrrum UFC bardagamaðurinn Nicolas Dalby hér en hann á fyrir höndum titilbardaga í Cage Warriors í mars.
Þrjár erlendar bardagakonur hafa verið í æfingabúðunum og hafa þær tekið góðar æfingar hér ásamt Sunnu Rannveigu okkar og okkar bardagakonum.
Auk þeir er hér á landi myndatökulið á vegum UFC til að mynda Gunnar Nelson sem verður í öðrum aðalbardaga kvöldsins á UFC London 15. mars næstkomandi þegar hann mætir Leon Edwards sem situr nú í 9. sæti heimslistans en Gunnar er sjálfur í 12. sæti.