Gunnar nelson nýr formaður mjölnis
1. febrúar 2018
Gunnar Nelsonsem jafnframt er einn af stærstu hluthöfum félagsins tók nýverið við kyndlinum semstjórnarformaður Mjölnis. Gunnar hefur þó ekki hugsað sér að fara úr keppnisgallanum og í jakkafötin í bráð:
“Mjölnir hefur verið afar stór hluti af mínu lífi undangengin 13 ár og ég tek stoltur að mér það hlutverk að verða formaður félagsins. Með þessu hef ég þó ekki í hyggju að fara að skipta mér mikið af rekstrinum. Afar vandað fólk er í því hlutverki. Ég mun hinsvegar vera virkur þátttakandi í stefnumótun og eflingu íþrótta- og keppnisstarfs. Hér hefur minn bardagaferill mótast og mun halda áfram að gera það næstu árin en samhliða mun ég nýta reynslu mína til að styðja aðra í sinni mótun,”segir Gunnar.
“Sterkur og samstíga hópur”
Árið sem nýliðið er fól í sérmiklar breytingar,hvort tveggja á húsakosti og mannauð félagsins. Þessar breytingar eru nú að mestu afstaðnar ogstarfseminkomin áfulla keyrslu. Gunnar bendir á að;
“Breytingum eins og þeim að flytja í mun stærra húsnæði fylgdu skiljanlega áherslubreytingar. Það þurfti að eiga sér stað smá naflaskoðun og það þurfti að leggja nýjar línur. Ekki var einróma sátt um þær ákvarðanir sem teknar voru og mannabreytingar fylgdu í kjölfarið. Eftir stendur sterkur og samstíga hópur sem lítur framtíðina björtum augum.Þetta var erfitt á meðan á því stóð en við sem eftir erum, erum sannfærð um að rétt skref hafi verið stigin. Við erum að horfa fram veginn og erum með áætlun um hvernig við ætlum að haga uppbyggingu félagsins. Meðlimir eru fleiri, tímataflan hlaðnari og stemmningin betri en nokkru sinni fyrr. Þannig að það er á hreinu að við erum að gera eitthvað rétt.“
“Allir geta æft í Mjölni”
Hjá Mjölni erfjölbreytt dagskráí boði og flestir ættu að geta fundið séreitthvað við sitthæfi þar. Í viðbót við allar þærbardagaíþróttirsem hægt er að æfa þar, er hægt að stunda ýmisskonarþrekogstyrktarþjálfun. Jafnframt er góð aðstaða til hverskyns líkamsræktar.
“Það eru mögulega ennþá einhverjir sem halda að það séu bara þeir sem séu sáttir við fá högg í andlitið sem geti æft hjá Mjölni. Það er náttúrulega alrangt,”segir Gunnar með bros á vör og bætir við:
“Allir geta æft í Mjölni. Hvort sem hugurinn leiðir þig að bardagaíþróttum eða einhverri annarri hreyfingu og rækt. Aðstaðan er frábær, dagskráin fjölbreytt og mig langar að nota þetta tækifæri til að ítreka að öllum sem langar að æfa í Mjölni stendur það til boða.”
“Góðir tímar framundan”
Gunnar verðurþrítugurá þessu ári og því er nokkuð ljóst aðnóg er eftiraf hansatvinnuferlií MMA/blönduðum bardagalistum. Má sem dæmi nefna aðTyron Woodleysem erríkjandi heimsmeistariUFC í þyngdarflokki Gunnars verður þrjátíu og sex ára á þessu ári. Jafnframt eru fjölmargir af hæst skrifuðu bardagamönnum jarðar komnir langt inn á fertugsaldurinn.
“Ég er ekki í nokkrum vafa um að mín bestu ár sem bardagamaður eru fyrir framan mig. Í seinasta bardaga leið mér betur en nokkru sinni áður. Var hraðari, sterkari og skarpari en ég hafði áður verið í bardaga. Bardaginn fór eins og hann fór en ég tek þessa vissu mér út úr búrinu og geri ráð fyrir að vera enn ferskari næst þegar einhver fæst til að mæta mér,”segir Gunnar og slær svo botn í samtalið með þessum orðum:
“Aðstaðan sem ég hef hér til að æfa er með því besta sem gerist í heiminum. Menn allstaðar að flykkjast til Íslands til að æfa með okkur og trúa varla hvað aðbúnaðurinn er góður. Hér á landi eru svo sífellt að koma upp fleiri og fleiri bardagamenn með fullt erindi inn á stóra sviðið. Það eru góðir tímar framundan.”