Grettismót mjölnis 7. nóvember
28. október 2015
Grettismót Mjölnis fer fram laugardaginn 7. nóvember nk. í Mjölniskastalanum en þetta er í þriðja sinn sem mótið er haldið. Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða ámjolnir@mjolnir.isen skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 5. nóvember. Skráningargjald eru kr. 4.000.
Keppt er í galla (Gi) í fimm þyngdarflokkum karla og tveimur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka beggja kynja. Vigtað er í galla daginn fyrir mótið. Keppt er eftir reglum og stigagjöf IBJJF (eins og á Íslandsmeistaramótinu) en þyngdarflokkana má sjá hér að neðan:
Þyngdarflokkar karla:-68kg, -79kg, -90kg, -101kg, +101kgÞyngdarflokkar kvenna:-64kg, +64kg
Mótsstjóri er Sigrún Helga Lund.
ATH AÐ ALLIR TÍMAR FALLA NIÐUR ÞENNAN DAG VEGNA GRETTISMÓTSINS
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










