Glámskvöld mjölnis í drukkstofunni 29. október
27. október 2016
Þann 29. október munum við halda okkar útgáfu af Halloween með því að hafa Glámskvöld. Fyrr um daginn er Grettismótið en það er opið mót í uppgjafarglímu þar sem keppt er í galla (gi). Það er því vel við hæfi að hafa smá party um kvöldið og kalla það Glámskvöld enda glímdi Grettir sterki við drauginn Glám í Grettissögu. Þar sem þetta er á sama tíma og Halloween þá ætlum við að klæða okkur upp í búninga og skemmta okkur langt fram á nótt.
Það verða veitt vegleg verðlaun fyrir flottasta búninginn, þ.e.a.s. 6 fríir mánuðir í Mjölni og kr. 20.000.- gjafabréf í Óðinsbúð.
Skemmtunin verður haldin íDrukkstofunni í nýja húsnæðinu okkar í Öskjuhlíðog opnar húsið kl. 21:00.
Ekki gleyma að melda þig á viðburðinn!
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










