Glæsilegur árangur mjölnis á íslandsmeistaramótinu
6. nóvember 2017
Mjölnismaðurinn Sighvatur Magnús Helgason var ótvíræður sigurvegari mótsins en hann vann bæði sinn þyngdarflokk sem og opinn flokk karla en þetta var í fimmta sinn sem hann afrekar það. Sighvatur fékk aðeins tvö stig á sig á öllu mótinu og kláraði allar glímurnar sínar á uppgjafartaki. Rúmlega áttatíu þátttakendur voru skráðir til leiks á mótið sem fór afskaplega vel fram. Eins og áður segir unnu Mjölnismenn til alls 13 gullverðlauna auk fjölda annarra og margar afar góðar glímur sem litu dagsins ljós. Má þar ásamt mörgum nefnda úrslitaglímu hins tvítuga Mjölnismanns Kristjáns Helga Hafliðasonar og yfirglímuþjálfara VBC Daða Steins Brynjarssonar í -88kg flokki karla. Svo fór að Kristján Helgi svæfði Daða Stein með svokallaðri kylfuhengingu en þess má geta að þetta er í annað sinn sem Kristján Helgi svæfir Daða Stein með þessari sömu henginu á stóru móti í BJJ. Myndir frá mótinu má m.a. finna áFacebooksíðu Mjölnis.
Hér að neðan má sjá alla verðlaunahafa á mótinu:
Hvítt belti
-64 kg flokkur kvenna
-74 kg flokkur kvenna
-70 kg flokkur karla
-76 kg flokkur karla
-82,3 kg flokkur karla
-88,3 kg flokkur karla
-94 kg flokkur karla
+100,5 kg flokkur karla
Blátt belti og hærra
-64 kg flokkur kvenna
+64 kg flokkur kvenna
-64 kg flokkur karla
-70 kg flokkur karla
-76 kg flokkur karla
-82,3 kg flokkur karla
-88,3 kg flokkur karla
-94,3 kg flokkur karla
-100,5 kg flokkur karla
+100,5 kg flokkur karla
Opinn flokkur kvenna
Opinn flokkur karla