Sunna berst í kvöld á invicta
23. september 2016
Sunna Rannveig Davíðsdóttir mun rita nafn sitt í sögubækurnar í kvöld þegar hún verður fyrst íslenskra kvenna til að keppa sem atvinnumaður í MMA en hún mætir Ashley Greenway á Invicta FC 19 bardagakvöldinu í Kansas í Bandaríkjunum. Eins ogþegar hefur komið framgerði Sunna í vor samning við MMA sambandið Invicta Fighting Championships sem er stórt bardagasamband í Bandaríkjunum þar sem eingöngu konur keppa en sterk tengsl eru á milli Invicta og UFC. Hægt er að horfa á allar Invicta keppnir beint áUFC FIght Passen bardagi Sunnu hefst á miðnætti í kvöld. Einnig verður bardaginn sýndur beint í Mjölni (sjáviðburð á Facebook).
Við minnum jafnframt á opinberaFacebook síðu Sunnuog að myndir frá ferðinni birtast áFacebook síðu Mjölnis.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










