Mjölnir open 2021 verður 19. júní
28. maí 2021
Mjölnir Open 15 verður haldið laugardaginn 19. júní kl. 11 í Mjölni í Öskjuhlíðinni. Vigtun verður í Mjölnishöllinni föstudaginn 18. júní milli kl. 17:00-19:00 en einnig er hægt að vigta sig á keppnisdegi.Skráning er á vefnum gegnum Smoothcomp.
Skráningargjald er 4.000 kr. og fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku eða nær ekki vigtun í skráðan flokk. Skráning lýkur föstudaginn 18. júní kl. 12:00. Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 500 kr.
Skráning á mótið fer einungis fram í gegnumSmoothcompen greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en keppni hefst. Athugið, allir keppendur þurfa aðskrá sig á vefnumen skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald.
Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:
Opinn flokkur karla+99 kg karla-99 kg karla-88 kg karla-77 kg karla-66 kg karla
Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:
Opinn flokkur kvenna+70 kg kvenna- 70 kg kvenna- 60 kg kvenna
Keppnisreglur á Mjölnis Open eru hér:https://www.mjolnir.is/static/files/Keppnisreglur/keppnisreglur-mjolnir-open.pdf
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










