Bjarki þór sigarði í london

2. maí 2017

Í gærkvöldi mætti okkar maður Bjarki Þór Pálssson öðru sinni Englendingnum Alan Procter á Fighstar 9 bardagakvöldinu sem fram fór í Brentford Fountain Leisure Center íþróttahöllinni í London. Í fyrra skiptið sem þeir mættust, sem var í desember 2016,  þá var Bjarka dæmdur sigur eftir að hafa fengið í sig ólöglegt hnéspark sem varð þess valdandi að hann rotaðist. Báðum bardagamönnum var það kappsmál að fá að mætast aftur og útklá málin. Bjarki var með stjórn á bardaganum nær allan tímann og var með talsverða yfirburði. Í annari lotu dró til tíðinda og eftir að Bjarki hafði komið Procter í óþægilega stöðu í gólfinu og látið höggin dynja þá stoppaði dómarinn bardagann.“Þetta var erfiður bardagi. Við komum báðir vel undirbúnir og ég fann það að hann ætlaði að gefa allt í þetta. Ég var nokkuð viss fyrir bardagann um það að glíman mín myndi vera sterkasta vopnið á móti honum og þess vegna sótti ég fast í að ná taki á honum og glíma. Það reyndist rétt og á endanum þá var það í gólfinu sem bardaginn vannst.”, segir Bjarki Thor og bætir við, \"Ég er ótrúlega glaður. Það vó þungt á mér að koma þessum bardaga út úr systeminu. Þó svo að mér hafi verið dæmdur sigur í seinasta bardaga þá var mér mikið í mun að klára þetta á mínum verðleikum. Og ég tel mig hafa gert það.”Ýmislegt gekk á í aðdraganda bardagans og mátti alveg eiga von á að slæmir straumar myndu neista á milli bardagamannanna. Svo var ekki og að bardaga loknum féllust þeir í faðma og þökkuðu hvor öðrum fyrir; “Við töluðum ágætlega saman eftir bardagann. Þetta er vænn drengur, svona þegar hann er ekki að kýla mann í andlitið, og þó svo að einhver orð hafi fallið í aðdraganda bardagans þá er bara kærleikur okkar í milli í dag. Þetta er íþrótt og þó svo að stundum sé skrípaleikur í aðdraganda bardaga þá bera bardagamenn ávalt virðingu hvor fyrir öðrum þegar bardaga lýkur. Verð samt að fá að segja að mér fanst “trashtalk-ið” og þessar myndir sem hann var að setja saman og dreifa á netinu alveg fáránlega fyndnar. Hann á alveg framtíð fyrir sér sem uppistandari þegar bardagaferlinum lýkur.”, segir Bjarki Thor.En hvað er svo næst hjá Bjarka Thor? \"Næsta mál á dagskrá hjá mér er smá frí með kærustunni minni sem er í námi á Spáni. Ætla að taka nokkra daga í sólinni með henni og njóta lífsins. Svo er það bara aftur á teikniborðið, finna næsta bardaga og keyra allt í gang. Ég stefni hátt og finn að ég er kominn á rétta sporið.\"

Myndir frá bardaganum á Facebooksíðu Mjölnis

Nýjustu fréttir

Buy card

Subscribe and get one basic course of your choice FREE. After that, members get 50% off basic courses.

Opening hours

Mondays and Wednesdays: 06:15 - 22:00

Tuesdays and Thursdays: 07:00 - 22:00

Fridays: 06:15 - 20:00

Saturdays: 08:45 - 15:00

Sundays: 10:00 - 15:00

Exercise halls close according to the timetable when the last class ends, but the weight rooms are open Mon.–Thu. until 22:00 and Fri. until 20:00.

The sauna, hot tub, and cold tub close 15 minutes before the scheduled closing time.

© 2024 — Copyright

© 2024 — All rights reserved