
Um námskeið
MMA 101 er 6 vikna grunnnámskeið í MMA. Á námskeiðinu er farið í grunninn á helstu bardagaíþróttunum svo sem brasilísku jiu-jitsu, striking, wrestling og hvernig má blanda þessu öllu saman.
Áhersla er lögð á tæknilegar æfingar þar sem ákefðin er byggð upp hægt og rólega en enginn þarf að óttast það að fá í sig þung högg á námskeiðinu. Tæknilegu æfingarnar snúast að t.d. fellum (upp við búr og út á gólfi), einföld högg og spörk, yfirburðastöðum úr jiu-jitsu sem henta vel í MMA, varnir frá botninum og margt fleira.
Kennsla fer fram á:
Fyrstu 4 vikurnar - þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:00
Síðustu 2 vikurnar - þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:45
KOMDU Í ÁSKRIFT OG FÁÐU NÁMSKEIÐIÐ FRÍTT:
Í áskrift (6 mánaða binditíma eða lengur) fylgir eitt grunnnámskeið FRÍTT að eigin vali. Eftir það fá meðlimir 50% afslátt af grunnnámskeiðum.
Innifalið í námskeiði og/eða áskrift:
Aðgangur að Gryfjunni (Boxpúðasvæði og lyftingaraðstaða).
Aðgangur að Útgarði (lyftingaraðstaða Mjölnis).
Aðgangur að heitum-, köldum potti og saunu.
Aðgangur að yoga.
Aðgangur að Crossfit (ef þú hefur lokið gunnnámskeiði eða hefur grunn).
Aðgangur að Víkingaþreki (ef þú hefur lokið gunnnámskeiði eða hefur grunn).
Búnaður:
Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
Tannhlíf
MMA æfingarhanskar (6 únsu)
Stuttbuxur og bolur
Dagskrá
Þriðjudagur
20:00 - 21:00
Þórssalur
Fimmtudagur
20:00 - 21:00
Þórssalur
Þjálfarar
Gunnar Nelson
Júlíus Bernsdorf
Aron Franz





















