Mót barna og unglinga.
Hér má sjá reglurtöflu BJÍ
Almennar upplýsingar sem tengjast mótum á íslandi
SMOOTHCOMP.COM
Öll skráning á mótum fer fram í gegnum Smoothcomp, þar sem einnig má finna yfirlit yfir öll væntanleg mót. Flokkar og dagskrá birtast þar stuttu fyrir mótsdag.
Athugið: Þyngdar- og aldursflokkar eru oft sameinaðir eftir þátttöku. Ef ekki er næg skráning í ákveðinn flokk, verður hann sameinaður öðrum sambærilegum flokki.
Á mótsdegi er mikilvægt að keppendur og foreldrar fylgist reglulega með Smoothcomp þar sem þar má sjá:
Hvenær næsta glíma fer fram
Á hvaða velli keppandinn keppir
Allar tímasetningar og breytingar
Tímasetningar geta breyst þar sem sumar glímur enda fyrr en aðrar.
DÓMGÆSLA OG REGLUR
Á ungmennamótum er öryggi keppenda í forgangi. Dómarar hafa heimild – og eru hvattir til – að stöðva glímu ef keppandi (10 ára og eldri) er kominn í lás (submission), jafnvel áður en hann "tappar" út.
Reglur varðandi lása má sjá hér að ofan og keppt er eftir tilsvarandi IBJJF reglum fyrir ungmenni.
Mót geta verið bæði í Gi og Nogi. Hvort um sé að ræða Gi eða Nogi keppni sést skýrt á skráningarsíðu hvers móts.

