
Gunnar Nelson fór til New York sl. mánudag (1. mars) og verður þar allavega fram til 20. apríl við æfingar með Renzo sem nú býr sig undir bardagann gegn Matt Hughes í UFC 112 þann 10 apríl. Gunnar er þarna ekki í amalegum félagsskap því þarna eru nú samankomnir margir af bestu MMA mönnum heims, m.a. annars sá besti þeirra allra UFC meistarinn Georges Saint-Pierre sem býr sig undir titilvörnina gegn Dan Hardy í UFC 111 þann 27. mars. En þarna eru fleiri góðir. Frankie Edgar sem berst við BJ Penn um léttivigtartitilinn á sama cardi og Renzo 10. apríl, Kenny Florian sem berst við Takanori Gomi 31. mars, Ricardo Almeida sem mætir Matt Brown í UFC 111 og fleiri super góðir fighterar eru þarna. Á myndinni má sjá Gunna æfa með engum öðrum en Georges Saint-Pierre en hægt er að sjá fleiri myndir af þessari æfingu þar sem Graciemag heimsótti þá þennan dag.
[powered by WordPress.]
32 queries. 0.086 seconds